Um Ísleif

Fyrirtækið

Ísleifur var stofnað árið 1921 og er því ein elsta starfandi byggingarvöruverslun landsins. Allan þann tíma hefur fyrirtækið selt hreinlætistæki, dælur, stýringar og efni til pípulagna í hæsta gæðaflokki

Í dag sérhæfir félagið sig í lausnum fyrir baðherbergi og eldhús, sölu hreinlætistækja, vara- og aukahluta tengt þeim og er markmið okkar að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og vörur í hæsta gæðaflokki, frá viðurkenndum framleiðendum.

Gæðavörur og góð þjónusta eru þeir áhersluþættir sem hafa fylgt fyrirtækinu alla tíð og höfum við fjölda samstarfsaðila í faginu til að ná okkar markmiðum. Má þar nefna Hansgrohe, Duravit, TECE, Ideal Standard og GSI.

Við reynum að fylgja verkefnum eftir frá hugmynd að afhendingu eða notkunar.

Í dag er verslun okkar og sýningarsalur staðsett á Smiðjuvegi 3 í Kópavogi.

Ísleifur er hluti af Fagkaup ehf, ásamt öðrum framúrskarandi fyrirtækjum sem þjónusta byggingariðnaðinn.

Kennitala 670169-5459, VSK nr. 11784